Nei hæ!;)

Rósin bloggar!!

14.09.2007 14:58:54 / Ástrós Rut

Mennt er máttur!

Dísús hvað þetta verður daunill helgi hjá mér.. fyrir utan reyndar eitt hörkudjamm á morgun sem ég er búin að lofa sjálfri mér þar sem ég hef ekki djammað síðan á menningarnótt!8| En ástæðan fyrir svona leiðinlegri helgi er sú að ég er að fara í 4 próf í næstu viku og er það þá ekkert nema lesefni 24/7! Þarf að vakna snemma til að liggja yfir bókum, drekka magic og liggja svo langt fram eftir nótt yfir sömu bókum.. eru komin jólapróf strax eða? Nei, kennarinn sagði að það væri bara að koma að miðannarmati og þá skella allir kennarar á okkur prófum og pæla ekkert í því hvort það séu önnur próf hjá okkur sama dag! Jæja svona er FG greinilega frábrugðinn Verzló en það er allt í lagi.. ég rúlla þessu bara upp eins og mér einni er lagið!;)

Seinustu dagar eru bara búnir að vera ósköp venjulegir.. skólinn og vinna!:D Var að vinna seinustu helgi í nýju vinnunni minni en ég er nýbyrjuð að vinna í afgreiðslunni í WorldClass og er það bara búið að vera frábært so far!:D Ég lenti á afar heppilegri vakt seinustu helgi en þá vorum við allar fjórar vinkonurnar að vinna saman og er það ekkert nema snilld!:haha: Alltaf gaman í vinnunni þar sem ég er á vakt með Krillu Lentz aðra hvora helgi.:D En skólinn er búinn að vera bara mjög fínn.. er reyndar ekki farin að kynnast neitt alltof mörgum en þetta kemur allt saman og fjölgar þeim með hverjum deginum!:) Er allavega mjög bjartsýn!;)

En jæja, þá tekur lestrartörnin við.. Wish me Good Luck!!:P

Ástrós!:$-



» 0 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 21:49:05 / Ástrós Rut

Baashjeeebaaaa!!!!

Þá er mín komin aftur og ætla ég að vera dugleg að blogga í vetur!:) Ætla að setja inn myndir og svona þar sem þið stelpurnar mínar getið skoðað öll fíflalátin og drykkjumennskuna í ykkur eftir helgina!;) En það er nú ekki margt búið að gerast í mínu lífi í sumar en ég ætla nú samt að nefna nokkra hluti.:)

  • Ég ákvað að skella mér í helgarferð til Kaupmannahafnar með mömmu sætu að heimsækja Snorra frænda og Egil Orra litla frænda.:) Flugum af stað föstudaginn 13. júlí 8| og var hann svo sannarlega föstudagurinn þrettándi því ég lenti næstum því í bílslysi í vinnunni þann daginn. Var á stórum sendiferðabíl með fullt af dóti sem ég var að sækja og við erum að tala um flísar og steypudrasl sem vógu nokkur hundruð kíló. Anywho.. ég þurfti að nauðhemla og fékk þetta því fljúgandi beint í bakið!:cry: Var gjörsamlega að drepast alls staðar í líkamanum en þegar á flugvöllinn kom lagaðist þetta allt saman með ísköldum bjór!:D Svo var ekkert aftur snúið og get ég sagt að það var mikill hressleiki í flugvélinni!;) En þetta var frábær ferð.. sátum allan daginn úti við Nyhavn að horfa á mannlífið og sötrandi bjór og íste og svo var skemmt sér á kvöldin. Fórum í tívolí á sunnudeginum og svo verslaði ég í fyrsta og eina skiptið á mánudeginum.. en við flugum heim um kvöldið. Mér fannst virkilega ótrúlegt að ég skyldi versla á deginum sem ég ætti að fara heim en svona á þetta að vera.. slappa bara af!:haha:


Snorri, Egill Orri og mamma sætu!;*
 

Jeee!;)
  • Ég ákvað að gerast fyrverandi Verzlingur og sótti um í FG. Mér finnst fjölbraut henta mér miklu betur því bekkjarkerfið var ekki alveg að gera sig fyrir mig.. langar að taka nokkra áfanga sem eru í FG en ekki í Verzló. Ég sé sko ekki eftir þeirri ákvörðun því núna er ég byrjuð í honum og líst bara rosa vel á!:) Stutt í skólann og kennararnir eru frábærir. Á reyndar eftir að kynnast krökkunum betur en ég þekki nokkra þannig að þetta verður allt í lagi! Stefnir í góðan vetur hjá mér!:D
  • Ég komst að því að ég er mesti lúði í heimi þar sem ég djammaði niðrí bæ einu sinni í sumar!! Djammaði reyndar í Kaupmannahöfn og um Versló en það var reyndar ekki í Reykjavíkinni..:) Ástæðan fyrir djammleysinu er sú að ég var í 200% vinnu í sumar og bara meikaði ekki annað en að sofa þessar aðra hvoru helgar sem ég átti í frí.:) En ég djammaði nú á menningarnótt og var þetta bara eitt skemmtilegasta kvöld þetta sumarið!:D Við hittumst hjá Hrafntinnu og þar var ég mætt með blenderinn minn og gerði ekkert annað allt kvöldið en að blanda Strawberry Daiquiri og hrista Mojito fyrir allt liðið!:haha: Byrjuðum bara stelpurnar en svo komu strákarnir og var þetta bara eitt besta partý!:D Svo tók bærinn við og var dansað af sér rassgatið á Oliver og tekið svo spjallið á það á Vegamótum.:) Ég skemmti mér ótrúlega vel.. vorum komnar heim um hálfsjö því Kristína vildi endilega fara í 10-11 að kaupa sér að borða.. með sólgleraugun á sér! Snædís og Kristína stóðu svo sannarlega upp úr og voru valdnar rónar kvöldsins því þær komu okkur hinum í hláturskast allt kvöldið!:lol: Geggjað vel heppnað kvöld stelpur!;*;*


Geggjað sætar og hressar!:D;*;*


Binni, Skúli og Grétar hressir að vanda!;)

´
Kristína og Snædís.. þessar drukku fyrir okkur hinar og stóðu sig vel í því!;)


Kristína og ég.. tan ársins held ég bara!;)


Siggi Rúnar, Binni og Kristína!:)


Sæta par!! Sigþór og Sara mín!;*;*


Kristína brilleraði í bílnum á leiðinni heim með Gucci sólgleraugunum sínum!;)

Já, það er ekki mikið búið að gerast hjá mér í sumar en ég er búin að vera svo dugleg að vinna að það er alveg afsökun!;) Annars ætla ég bara að segja þetta gott í bili.. sjáumst fersk!;)

-Ástrós!;* 


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.07.2007 22:26:07 / Ástrós Rut

Long time no writing..!:S

Vá hvað það er alltof langt síðan ég skrifaði hérna seinast.. get ekki alveg sagt að ég sé færslumeistari ársins..!:$ En ég hef að sjálfsögðu góða afsökun og það er vinnan, vinnan og já, aftur vinnan!:) Ég ákvað að fara í 200% vinnu í sumar því ég ætlaði að verða svo dugleg en það skilaði sér engu nema ofþreytu þegar heim var komið..8| Það eina sem ég er búin að gera þegar ég kem heim er að sofa! Og ekki er það nú gott!;) En allavega, þá er ég að vinna í Alcan núna á lagernum og svo er ég að klára núna á Café Paris.. ætlaði að vera út allt sumarið en ég ákvað að taka mér smá pásu og chilla aðeins í ágúst.. verð að sjálfsögðu ennþá að vinna í Alcan en það verður náttla písakeik!;) En hver veit nema maður fari aftur að vinna á Café Paris í vetur.. æðislegur vinnustaður verð ég að segja!:)

En núna ligg ég uppí rúmi og er búin að vera í því síðan á mánudag því ég er lasin!:whut: Fékk einhverja ljóta sýkingu og er búin að vera á fúkkalyfjum og ég get sko sagt að þau eru ekki að fara vel í mig!:S Er of óglatt til að borða en samt svo svöng að ég er að drepast í maganum..:S = ekki gott! En þetta batnar örugglega fljótlega!:)

Dúddúrú.. þarseinustu helgi fór ég til Köben með múttu að hitta frænda okkar og var þetta gjörsamlega frábær helgi í alla staði!:D Við byrjuðum að skála í flugvélinni á leið út og hættum ekki fyrr en á leiðinni heim;) Sátum á Nyhavn alla helgina og horfðum á mannlífið og sötruðum bjór..:) Þetta var æðislegt! Ekkert smá gott að fara svona burt aðeins frá öllu saman og bara chilla! Ég verslaði ekki fyrr en daginn sem við fórum heim.. vöknuðum klukkan ellefu á mánudagsmorgninum og drifum okkur í Fields.. og vá! Ég held að ég hafi ekki verslað eins mikið á einum degi síðan.. ja ég hef aldrei verslað svona mikið á einum degi!:haha: Geggjað stuð og ég fílaði mig í tætlur!;) Fór í dónóbúð og keypti mér Stelly award en þeir fatta sem vita hvað það er.;)

Seinustu helgi var bara vinna og ekkert annað.. mér finnst samt frábært að vita til þess að þetta var seinasta helgin mín sem ég þarf að vinna í sumar!:) Stelpur.. sólskinspartý hjá mér næstu helgar! Kokteilar, sól, grill og heitur pottur með froðu er eitthvað sem ekki er hægt að segja nei við!;)

En ég ætla að fara að horfa á eitthvað af viti og fara svo að halla mér svo ég nái þessum flökuleika úr mér!:$

Adios!:D

Ástrós!;*

 

 

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.05.2007 17:01:24 / Ástrós Rut

Ungfrú Ísland í kvöld!!:D:D

ALLIR AÐ KJÓSA FANNEY LÁRU SEM UNGFRÚ ÍSLAND Í DAG OG Í KVÖLD!!:D:D

NETKOSNING Í GANGI Á WWW.UNGFRUISLAND.IS OG Í SÍMA 9003007!!;)

VERIÐ NÚ DUGLEG OG KJÓSIÐ FANNEYJU MÍNA!!;););*;*

ÞÚ ERT LANGSÆTUST ELSKAN!!:haha:;*;*

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 18:41:10 / Ástrós Rut

Minns lasin..!:S

Jæja, þá er minns lagstur í kvef og hósta og er það nú aldeilis ekki gott!:( Búin að vera lasin alla helgina og er aftur komin með hita.. obbobbobb!:$ En ég verð bara dugleg að drekka te og c-vítamín og sólhatt og þá er ég klár í fjörið!;)

Sumardagurinn fyrsti gekk í garð á miðnætti á miðvikudaginn og var því heldur betur fagnað í Sólheimum 7! Þar voru komnar saman nokkrar stelpur og drukku þær eins og sannir karlmenn.. mikið!!:haha: :haha: Þetta var alveg geggjað fjör og þakka ég fyrir mig Stefanía mín..;* Ég setti inn nokkrar myndir hérna til hliðar og vá þær eru sumar hverjar aðeins of fyndnar! Er allavega búin að vera í hláturskasti við að setja þær inn!:haha::lol:

Um helgina gerði ég nothing þar sem ég var lasin..:$ Fór samt í vinnuna í nokkra tíma á laugardeginum en fólkið heyrði varla í mér þegar ég bauð góðann daginn og sagði: "Get ég aðstoðað?" þar sem röddin mín var horfin..!:S Svo var bara tjill heima hjá Stefó.. ætluðum að djamma en ég beilaði í fyrsta skipti í laaangan tíma þar sem ég vildi frekar fara heim og leggjast uppí rúm lasin.. Fyrirgefðu mér Stefanía mín!;) en við tókum samt góðan rúnt með Önnu Grétu og skemmtum okkur vel!;) Á sunnudeginum fór ég í afmæliskaffi hjá afa og svo var bara ennþá meira tjill heima hjá pabba..:) Voða þægileg helgi eitthvað þ.e.a.s. ef kvefið hefði verið farið!:$

En jæja, ég er farin að snúa mér að sögunni þar sem prófin eru á næsta leiti..!:D

Yfir og út!

Ástrós!:)


astros 080.JPG


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 20:44:39 / Ástrós Rut

Senn nálgast prófin!:D

Það styttist óðum í prófin og finn ég að ég verð alltaf stressaðri og stressaðri með deginum!:S Það er nú ekki alveg nógu gott þar sem það eina sem ég þarf að gera er að lesa þetta vel og svara svo spurningunum!;) Getur varla verið erfitt!:D En það sem ég vildi nú frekar koma á framfæri er það sem er búið að vera að gerast síðustu daga hjá mér og mun ég nefna eitt sem stendur ALVARLEGA upp úr!;) En.. það sem hefur drifið á daga mína er semsagt:

·         Páskarnir! Ég fór með familíunni til Siglufjarðar um páskana í viku en við eigum hús þar og erum ansi dugleg að koma þangað um páskana og verslunarmannahelgina!:D Það er alltaf jafn gaman og gott að koma til Sigló.. fórum á skíði alla daga og já! Ég og Anna Gréta djömmuðum að sjálfsögðu af okkur rassgatið á föstudeginum!:D:D Þetta var alveg geggjuð ferð í alla staði og skemmti ég mér mjög vel!:) Myndir komnar til hliðar!;)

astros 031.JPG
Geðveikt gaman hjá Önnu Grétu!;)

astros 032.JPG
Anna varð crazy og fór að teygja á mér andlitið;)

astros 015.JPG
Flottasta mynd kvöldsins!:D

astros 008.JPG
Skvísurnar sem héldu geðveika fyrirpartýið þar sem 100 manns mættu! haha;) Geggjað skemmtilegar hnátur!:D

 

 

·         UNGFRÚ REYKJAVÍK!! Það sem stendur upp úr í þessum mánuði er að hún Fanney Lára vinkona mín var krýnd Ungfrú Reykjavík og er ég ekki enn búin að ná mér úr sjokkinu!! Þetta var alveg ótrúleg stund þar sem öskur, tár og gleði streymdu frá mér!:‘(:D:D Pælið í því hvernig það er að vakna svo daginn eftir og sjá kórónuna á náttborðinu og bara.. jahá, ég er ungfrú REYKJAVÍK!!:D Vá crusial móment ha?!!?:D Berglind vinkona mín tók líka þátt og var hún stórglæsileg að vanda og lenti í 4. sæti!:D Heldur því áfram í ungfrú Ísland! Til hamingju með það Berglind mín!;*;* Ég náði því miður bara að taka myndir af byrjunaratriðinu því myndavélin mín ákvað að gerast besti vinur minn og varð batteríslaus!:S En atriðið var svo geðveikt að það var svosum allt í lagi!;)  Reif líka bara myndavélina af Öddu og gerðist ljósmyndari ársins!;) hahaha:D En já, enn og aftur til hamingju með sigurinn Fanney sætust mín og gangi þér sem allra best í ungfrú Ísland!:) Þú tekur þetta!!;)

astros 006.JPG
Gaman á Ungfrú Reykjavík!;)

astros 014.JPG
Flotti dansinn þeirra!:D

fanney, astros og co.jpg
Stoltar vinkonur!!:):o)

 

En já.. þetta er það sem svona helst búið að gerast hjá mér.. annars er ég búin að sækja um vinnu hjá Alcan í Straumsvík fyrir sumarið og fara í viðtal og held ég að þetta sé bara allt að ganga upp hjá mér!:) Verð semsagt í bláum vinnugalla með hjálm og hanska í sumar.. sexy ha??;)
En ég sótti líka um hjá Café Paris fyrir helgarnar í sumar og held ég að það hafi gengið upp líka!:) Er semsagt að fara að verða vinnualki eins og öll sumur hjá mér einkennast af.:D SAMT ætla ég nú að vera dugleg á fríhelgunum mínum að djamma með stelpunum þar sem ég missti algjörlega af því seinasta sumar!:S Er búin að lofa þeima að endurtaka það ekki!:D

By the way.. þá er eitt heljarinnar djamm á morgun þar sem það er frí daginn eftir og ætlum við stelpurnar að hittast heima hjá Stefaníu sætu þar sem hún er ein heima og munum við gera allt vitlaust heima hjá henni og niðrí bæ!;) Þetta verður osom!:D

Eplaballið! 041.jpg
Svona gerir maður í sveitunum!;)

Eplaballið! 040.jpg
Svona gerir Inga við hvert tækifæri!;);)

Eplaballið! 088.jpg
Haha! Stefanía drepur mig!!:D

 

Annars er ég bara að gera allt klárt fyrir prófin í lok mánaðarins og er það mjög mikið sem þarf að glósa og skipuleggja þannig að best er að byrja sem fyrst.:) Óskið mér góðs gengis!;)

Ástrós!:)(K)


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.03.2007 17:39:10 / Ástrós Rut

Property of the penile system?

Sælt veri fólkið.. ætlaði bara að blogga hérna smá um GRÍMUBALLIÐ sem var haldið á Nasa. :haha: Kvennó stóð svo sannarlega fyrir sínu með því að halda geðveikasta ball ársins!!:haha: Þetta var alveg ótrúlega gaman og bara allt kvöldið var geðveikt! Við byrjuðum á því að hittast nokkrar heima hjá Stefaníu og skelltum okkur í búningana.. sem var by the way flottustu búningarnir á ballinu!;) Lögga, fangi, hjúkka og klappstýra er eitthvað sem kveikir í öllum!;) En svo skelltum við okkur uppí Árbæ í fyrirpartý og var það eintóm skemmtun!:D Hrafntinna fékk mjög skemmtileg comment frá foreldrum partýhaldaranna en mamman er einmitt hjúkka!;) En svo lá leið okkar inní leigubílinn þar sem skemmtilegi leigubílstjórinn beið okkar!;) Bulluðum aðeins of mikið í greyinu en ég held að hann hafi fílað það í tætlur. En jæja, svo vorum við komnar fyrir utan alþingishúsið og var þar prakkarast svolítið en ég ætla ekkert fara út í það..;) Þeir vita það sem voru þarna!:P Röðin var ansi "skemmtileg" þar sem að ég ætlaði að klára bjórinn minn en dyravörðurinn kom bara að mér, reif bjórinn og henti honum alveg brjálaður! Öss.. algjör bjáni segi ég nú bara. En svo þegar við vorum komnar inn beið okkar eintóm skemmtun og dansaði ég eins og crazywoman allan tímann!:D Þetta var alveg geðveikt gaman og get ég ekki beðið eftir að endurtaka þetta á næsta ári!:) En ég er farin.. myndir að koma inn hér til hliðar.:)

Kv. Ástrós!:D


Ég fangi, Stefanía lögga og Hrafntinna hjúkka! Warr..*


Anna Gréta og Hrafntinna sætu!;)


Stuuuð!!;)


Hahahahah!:D


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.03.2007 20:13:39 / Ástrós Rut

Baby I'm back!

Hæhæ.

Jæja þá er stelpan farin að blogga aftur eftir langt hlé en ég lofa að nú mun ég blogga oftar!:) Ekki það að margir séu að skoða þessa síðu en ég er þá frekar að lofa sjálfri mér að blogga oftar... og kannski Bexý!;) En hún er sú eina held ég sem skoðar þessa síðu og VEIT um þessa síðu!;);) En það er margt búið að vera í gangi hjá mér seinustu vikur og mun það vera:

  • Nemendamótið í Verzló! Alveg geðveikur dagur og kvöldið var ekki verra!;) Ég náði að skemmta mér allan sólarhringinn og held að flestir Verzlingar hafi gert það líka! Leikritið var mjög skemmtilegt, maturinn var æði, fyrirpartýið var ennþá betra og að sjálfsögðu stóð ballið fyrir sínu!;)
  • Sumarbústaðarferð! Við stelpurnar í bekknum fórum saman á sveitabæ sem ein í bekknum á og var það nú bara ansi skemmtilegt! Ætla ekkert að fara nánar út í hvað átti sér stað þar en maður getur sagt að áfengið kláraðist mjöööög fljótt!;) Og var ég víst valin "fulli gaurinn"!:$
  • Djamm og aftur djamm! Held að ég hafi sjaldan verið jafn dugleg að kíkja á djammið eins og undanfarnar vikur og held ég að það sé komið gott í bili. Ætla allavega að taka það rólegra og einbeita mér betur að því að læra heima.. en það er búið að vera í pásu í alltof langan tíma!:S

Man bara ekki eftir meiru í augnablikinu en það er alveg örugglega eitthvað meira. Greinilega of ómerkilegt til að muna eftir!:)

En anyways.. held að þetta sé komið gott.. er ekki alveg í réttu stuðinu til að koma með gott blogg!:| Later..:)

 Ástrós-


Elma og ég í Hummerlimmunni á leiðinni á Nemóballið!:D

Ps.: Kellingin er k omin með myspace!;) www.myspace.com/astrosrut ;);) 


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.01.2007 16:47:20 / Ástrós Rut

Nýtt ár - Ný dagbók!

Brand new year... brand new diary eins Bridget Jones segir það en hún er ein af mínum uppáhalds myndum þessa stundina. Get horft á hana aftur og aftur!:D En nú er komið nýtt ár og er allt frekar nýtt hjá mér núna.. Komin með enn eina vinnuna og eru þær því orðnar þrjár þannig að ég þarf svo sannarlega að fara að skipuleggja mig! Og er það líka eitthvað nýtt hjá mér!;)

Það er nú allt búið að vera svona frekar í rólegri kantinum hjá mér þessa dagana og er ég alveg sátt við það því ég er í undirbúningi fyrir allsherjar fleepp á fimmtudaginn en þá rennur upp dagur Verzlinga.. NEMÓ!! Þetta verður náttla aðeins of skemmtilegur dagur og er ég að reyna að setja saman alla þá tíma sem ég ætla að panta mér.. en maður þarf að sjálfsögðu að líta sem best út á Nemó og mun plokkun, litun og klipping, airbrush og vax hjálpa mér í þeim pakka!;) En það sem er búið að gerast hjá mér er frekar lítið.. fór aðeins í bæinn á laugardag eftir að hafa verið ein heima með hvolpinum mínum seinustu tíu daga á meðan pabbi og fjölskylda skelltu sér í skíðaferð til Austurríkis og var ég eftir heima að passa hvolpinn.. sem var bæði skemmtilegt og lítið pirrandi þar sem hann reyndi allt hvað hann gat til þess að reyna á þolinmæðina hjá mér! Át skóna mína og peysuna, var alltaf með sokk af mér í kjaftinum og já hann elskar leður! Þannig að leðurstígvélin mín og pumaskórnir voru allt annað en látnir í friði! En þetta var samt mjög gaman og erum við orðin eins og systkini í dag!:D

En annars er ég bara í rólegheitunum hérna heima núna og bíð spennt eftir Nemó!:)

Adios!

IMG_1559.JPG

Ástrós:D


» 5 hafa sagt sína skoðun

31.10.2006 15:53:53 / Ástrós Rut

Sviðakjammar og soðin fita! Það er lystugt!

Hellú!

Helgin var frekar afslöppuð hjá mér! Enda er ég búin að keyra mig alveg út af djammi seinustu helgar svo þessi helgi fór bara í það að vinna upp orku fyrir sumarbústaðarafmælispartýið hjá blessuðu vinkonum mínum þann tíunda nóvember!!:D:D Úff hvað ég hlakka til!!:D Þetta verður aaaaawwweeesome!!!;):P En helgin fór í þetta:

Föstudagur: Var heima og gerði ekki neitt.. eða varð það ekki? Úff.. ég man ekki svona langt aftur í tímann!:P

Laugardagur: Var í sextugsafmæli hjá frænda mínum og stóð við barinn allan tímann! Ekki útaf því að mér leiddist heldur vegna þess að ég sá um að gefa fólki að drekka! Ég var semsagt barþjónninn þetta kvöld og skemmti ég mér vel!;) Eftir það fór ég með Bjarka í partý til Ósk og var þar mikið sprell. Síðan lá leiðin hjá liðinu niður í bæ en ég fór bara heim að sofa.. nennti ekki neinu!:)

Gaman saman hjá Ósk!:D


Sexy svipur..;)

Sunnudagur: Fór að horfa á Róbert Leó litla bróður minn spila fótbolta á einhverju móti sem ég man ekki alveg hvað heitir og gekk þeim svona alveg ágætlega!:S:) En gaman samt að horfa á hann spila!:) Svo var bara ekkert annað en slátur og sviðakjammar í matinn klukkan fimm og bara öll familían mætt á staðinn! Amma, afi, langamma, langafi og Lóa systir langömmu! Ég og Bjarki létum okkur að sjálfsögðu ekki vanta!;) Eftir dýrindis mat (borðaði eingöngu slátur, finnst át á sviði vera grimmdarlegt!) fór ég í SAUMAKLÚBB hjá vinkonu minni, Söru og var allt laugó pakkið mætt á staðinn, en það eru gömlu vinkonurnar mínar úr Laugalæk! Og vá, þar var sko hlegið úr sér allt vit og rifjaðir upp gamlir tímar.. s.s. leiðinlegir kennarar, skammastrik, náttfatapartý, fyrverandi kærastar (ehemm;)) og margt fleira skemmtilegt!;) Ótrúlega skemmtileg stund sem verður sko haldin aftur innan skamms!:D


Stefanía og Sigurrós héldu uppi stuðinu í saumaklúbbnum!;)

Svo er ég núna bara búin að vera róleg ætla ég að halda því áfram það sem eftir er dagsins. Ég á víst að elda í kvöld og verður það kjúllarétturinn minn víðfrægi sem verður fyrir valinu í þetta skiptið! Hann er reyndar nánast alltaf valinn þar sem ég kann varla að elda neitt annað en hann passar svo vel með leiknum í kvöld!;)

En ég segi þetta gott núna og eigið góða kvöldstund!:)

ÁFRAM CHELSEA!!:D

Kveðja, Ástrós!;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.09.2006 16:12:08 / Ástrós Rut

Loksins komin úr sumarfríi!!;D;D

Heil og sæl!

Þá er ég komin aftur eftir langt sumarfrí og ætla ég að REYNA að vera eins dugleg og ég get að blogga fyrir ykkur elskurnar mínar!;) Sif.. til þín!;);)

En sumarið var bara ágætt svosum.. en ég ákvað að gera nokkra punkta yfir það sem ég gerði í sumar!:) Voða gaman!:D

  • Ég var að vinna í ALLT sumar á Hótel Eddu, Laugum í Sælingsdal sem er fyrir Vestan og tekur TVO tíma að keyra til Reykjavíkur! Þetta var sko ekkert spaug þar sem ég var fjarri fjölskyldu og vinum og kærastanum mínum í marga daga!! Og ofan á það, þá var vinnan ansi erfið þar sem ég var nánast non-stop hlaupandi út um alla ganga að sinna viðskiptavinunum! En þetta var frábær reynsla og kenndi mér margt.:) Ætla samt aldrei að vinna aftur úti á landi! Allt of erfitt!:'( Það sakna mín svo margir víst!;)


Gaman í vinnunni!;)

  • Ég fór til SALOU!! á Spáni í tvær vikur með kærastanum og átta öðrum vinum!:) Þetta var ótrúlega skemmtileg ferð og einkenndist hún af: drykkju, slysum, tekíla flippi, skemmtilegheitum, fallturni, sólarsleik, froðupartý og dansi við slökkvitæki!:O:P Án efa skemmtilegasta útlandaferð sem ég hef farið í!!:D:D

IMG_0362.JPG
Fanney, Linda, ég og Adda sætu!=)

IMG_0395.JPG
Ég og Jóna!;*

IMG_0437.JPG
Ég grafin..:S :P

IMG_0440.JPG
Moi et Bjarki!;)

IMG_0469.JPG
Allir krakkarnir!=)

  • Um Verslunarmannahelgina fórum við skötuhjúin saman til Siglufjarðar að hitta familíuna mína þar sem við eigum hús þar á bæ og var þetta bara mjög skemmtileg ferð! Borðuðum góðan mat og hittum síðan Önnu Grétu aka flirter-flipper en við tókum eitt nett djamm sem var mjög skemmtilegt!!:D Ég og Anna Gréta endurtókum sporin á dansgólfinu frá því um páskana!;)


IMG_0566.jpg
Já, það var stuð!!;):D

IMG_0563.jpg
Anna Gréta óð í villtum folum!!;);)

  • Annars var voða lítið sem ég gerði þar sem ég var að vinna hverja einustu helgi og fékk ekkert frí þannig að þetta var frekar einhæft sumar hjá mér.. en skemmtilegt þó!:P

En nú er ég byrjuð aftur í skólanum og gengur það bara vel!:) Ætla að einbeita mér vel að náminu í vetur og reyna að skipuleggja mig vel!:) Fimmtudaginn 14. september var BUSABALL og skemmti ég mér konunglega!:D:D Einstaklega skemmtilegt fyrirpartý og fær Jón Atli klapp á bakið fyrir það!;) Ballið var ekki af verri kantinum en það máttu alveg vera færri því það var gjörsamlega troðið!! Það eru komnar nokkrar myndir inn hérna til hliðar!:)

IMG_0932.jpg
Ég og Helga að pósa!;)

IMG_0959.jpg
Stuð á kallinum!;)

En þá er bara svona flest allt komið og segi ég bara takk og bless í bili!:D

Ástrós is out!-


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.08.2006 14:25:57 / Ástrós Rut

Summer vacation!;)

 

Er í smá sumarfríi frá bloggi..8)

 

Byrja aftur að blogga þegar skólinn byrjar!

 

Adios!! Ástrós Rut!;)

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

10.07.2006 08:47:08 / Ástrós Rut

Espana!!

3 dagar í SALOU!!!!:D:D:D:D

 

IT´S GONNA BE OSOM!!:haha::haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.07.2006 08:47:47 / Ástrós Rut

When girls drink too much!;)

 

When Girls Drink Too Much!!


1. WE HAVE ABSOLUTELY NO IDEA WHERE OUR PURSE IS.


2. WE BELIEVE THAT DANCING WITH OUR ARMS OVERHEAD AND WIGGLING OUR BUTT, WHILE YELLING "WOO-HOO!" IS TRULY THE SEXIEST DANCE MOVE EVER!!:lol:


3. WE'VE SUDDENLY DECIDED THAT WE WANT TO KICK SOMEONE'S ASS AND HONESTLY BELIEVE WE COULD DO IT TOO!!


4. IN OUR LAST TRIP TO PEE, WE REALIZE THAT WE NOW LOOK MORE LIKE A HOMELESS HOOKER THAN THE GODDESS WE WERE JUST FOUR HOURS AGO.:$


5. WE DROP OUR 3:00 A.M. BURRITTO ON THE FLOOR (WHICH WE'RE EATING EVEN THOUGH WE ARE NOT THE LEAST BIT HUNGRY), PICK IT UP AND CARRY ON EATING IT..;)



6. WE START CRYING AND TELLING EVERYONE THAT WE LOVE THEM SOOOOO MUCH..!!:D


7. WE GET EXTREMELY EXCITED AND JUMP UP AND DOWN EVERY TIME A NEW SONG PLAYS BECAUSE "OH MY GOD! I LOVE THIS SONG!":haha:


8. WE'VE FOUND A DEEPER/SPIRITUAL SIDE TO THE GEEK SITTING NEXT TO US!:$


9. THE MAN WE'RE FLIRTING WITH USED TO BE OUR 5TH GRADE TEACHER.


10. THE URGE TO TAKE OFF ARTICLES OF CLOTHING, STAND ON A TABLE AND SING OR DANCE BECOMES STRANGELY OVERWHELMING TO US.


11. OUR EYES JUST DON'T SEEM TO WANT TO STAY OPEN ON THEIR OWN SO WE KEEP THEM HALF CLOSED AND THINK IT LOOKS EXOTICALLY SEXY. 8)


12. WE'VE SUDDENLY TAKEN UP SMOKING AND BECOME REALLY GOOD AT IT.


13. WE YELL AT THE BARTENDER, WHO WE BELIEVE CHEATED US BY GIVING US JUST COKE, BUT THAT'S JUST BECAUSE WE CAN NO LONGER TASTE THE RUM.


14. WE THINK WE ARE IN BED, BUT OUR PILLOW FEELS STRANGELY LIKE THE BATHROOM FLOOR...


15. WE START EVERY CONVERSATION WITH A BOOMING, "DON'T TAKE THIS THE
WRONG WAY BUT..."


16. WE FAIL TO NOTICE THAT THE TOILET LID'S DOWN WHEN WE SIT ON IT.


17. OUR HUGS BEGIN TO RESEMBLE WRESTLING TAKE-DOWN MOVES.


18. WE ARE TIRED SO WE JUST SIT ON THE FLOOR (WHEREVER WE HAPPEN TO BE STANDING) AND TAKE A QUICK NAP.:P


19. WE BEGIN LEAVING THE BUTTONS OPEN ON OUR BUTTON FLY PANTS TO CUT DOWN ON THE TIME WE’RE IN THE BATHROOM AWAY FROM OUR DRINK TIME.


20. WE TAKE OUR SHOES OFF BECAUSE WE BELIEVE IT'S THEIR FAULT THAT WE'RE HAVING PROBLEMS WALKING STRAIGHT.


22.
ONE GIRL FALLS SHE TAKES THE OTHERS WITH HER. THE WORST PART IS THAT WE JUST LAY THERE AND LAUGH BEFORE ATTEMTING TO GET UP!;)



» 0 hafa sagt sína skoðun

04.07.2006 10:52:28 / Ástrós Rut

Kreisí!

 

 

10 í gær!

 

 

 

9 Í DAG!!

SALOU.. VIÐ ERUM Á LEIÐINNI!!:D:D

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Klukkan
Myndasöfn
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Dagsetning
10. febrúar 2012